Sparisjóðsmót 2008
Hið árlega Sparisjóðsmót Keflavíkur verður haldið í Íþróttahúsinu við Sunnubraut laugardaginn 8 nóvember. Mótið er opið öllum sem ekki hafa unnið til verðlauna í opnum mótum fyrir félagið sitt eða deild.
Nú er tækifæri fyrir þá unglinga sem æfa badminton, en eru ekki í fremstu röð í sínum flokki, að koma saman og keppa við þá sem eru svipaðir að styrkleika.
Spilað verður svo kallað spaðarugl og ekki gert greinamunur á strákum og stelpum í flokknum U-11, verður spilað frá kl. 10-12 og á þeim tíma spila krakkarnir eins marga leiki og hægt er! Allir vinna.. Spiluð er 1 lota upp í 21.
Í U-13 og U-15 flokkum verður keppt í einliða- og tvíliðaleik. Þeir sem tapa fyrsta leik í einliðaleik fara í aukaflokk. Þannig fá allir í það minnsta tvo leiki. Keppni í þessum flokkum hefst kl. 12 og verður leikið fram eftir degi.
Vonandi sjá sem flestir foreldrar og aðrir áhugafólk sér fært um að koma og horfa á .
Hægt er að skila inn þátttöku á e-mail badmin@simnet.is skilafrestur er til 4 nóv.