Sparisjóðsmót 2009
Sparisjóðsmót Keflavíkur 2009 verður haldið í Íþróttahúsinu við Sunnubraut laugardaginn 31 oktomber. Mótið er opið öllum sem ekki hafa unnið til verðlauna í opnum mótum fyrir félagið sitt eða deild.
Nú er tækifæri fyrir þá unglinga sem æfa badminton, en eru ekki í fremstu röð í sínum flokki, að koma saman og keppa við þá sem eru svipaðir að styrkleika.
Flokkurinn U-11 verður spilaður á 2 tímum frá kl. 10-12 og á þeim tíma spila krakkarnir eins marga leiki og hægt er! Enginn sigurvegari og enginn sem tapar. Spiluð er 1 lota upp í 21.
Í U-13 og U-15 flokkum verður keppt í einliða- og tvíliðaleik. Þeir sem tapa fyrsta leik í einliðaleik fara í aukaflokk. Þannig fá allir í það minnsta tvo leiki. Keppni í þessum flokkum hefst kl. 12 og verður leikið fram eftir degi.
Vonandi sjá sem flestir foreldrar og aðrir áhugafólk sér fært um að koma og horfa á .