Fréttir

Badminton | 28. október 2010

Sparisjóðsmót 2010

Hið árlega Sparisjóðsmót Keflavíkur  verður haldið í Íþróttahúsinu við Sunnubraut laugardaginn 30 október. Mótið er opið öllum sem ekki hafa unnið til verðlauna í opnum mótum fyrir félagið sitt eða deild.

Nú er tækifæri fyrir þá unglinga sem æfa badminton, að koma saman og keppa við þá sem eru svipaðir að styrkleika.

Flokkurinn U-11 byrjar að spila kl 10 og fara í svo kallað spaðarugl svo að allir fái sem flesta leiki og strákar og stelpur spila á móti hvort öðru. Enginn sigurvegari og enginn sem tapar. Spiluð er 1 lota upp í 21. Þegar allir eru búnir að spila þá fá þeir þátttökupening afhentan

Í U-13 og U-15 flokkum verður keppt í einliða- og tvíliðaleik. Þeir sem tapa fyrsta leik í einliðaleik fara í aukaflokk. Þannig fá allir í það minnsta tvo leiki. Keppni í þessum flokkum hefst um kl: 11:30 og verður leikið fram eftir degi.

Vonandi sjá sem flestir foreldrar og annað áhugafólk um baminton sér fært að koma og horfa á, í nýrri og skemmtilegri aðstöðu.